Farleiðir íslenskra hnúfubaka
Hnúfubakar ferðast einna lengst alla fardýra og geta ferðalögin orðið lengri en 7000 km á ári hverju. Hvalasýningin Whales of Iceland merkti þrjá hnúfubaka síðasta vetur og hefur fylgst með ferðum þeirra í gegnum gervihnött síðastliðið ár. Margt verður á vegi dýranna á þessu langa ferðalagi en breytingar á hafinu í kringum Ísland og hitastig sjávar hafa áhrif á ferðir þeirra í kringum landið.
Aldursgreining hvala
Ímyndaðu þér hafið án umferðar stórskipa. Í kringum Ísland búa hvalir sem muna þann tíma enda eru hvalir spendýr sem geta náð ævintýralega háum aldri. Með því að skoða tennur hvalanna er hægt að áætla aldur þeirra líkt og hjá mönnum. Hins vegar hafa ekki allir hvalir tennur og hvað gerum við þá? Við svörum þessari spurningu og mörgum öðrum og fá börnin meðal annars að rannsaka skíði og tennur og spreyta sig sjálf á aldursgreiningu búrhvals. Gæti verið að núlifandi íslenskur hvalur hafi séð Titanic sökkva?

#whalesoficeland
Follow us for news and offers